top of page

MEMA - 2024

MEMA hraðallinn ákveður á hverri önn þema út frá Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, en áskorunin sem varð fyrir valinu var tengt markmiði 15, Líf á landi. Sjö lausnum var skilað inn til dómnefndar MEMA 2024 og við tók ströng yfirferð verkefna.

Fjölbreytt teymi frá twem framhaldsskólum tóku þátt í MEMA 2024 nýsköpunarhraðlinum. Teymin voru frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla og Menntaskólanum á Ísafirði

 

15-1.png

UPPSKERUHÁTÍÐ MEMA 2024

Til hamingju með sigurinn, teymi Menntaskólanum á Ísafirði, Endurskínandi kindur

Til hamingju Soffía Rún Pálsdóttir, Margrét Rós Hlynsdóttir, Guðrún Natalía Hafþórsdóttir, Elísabet Emma Olsen og Bjargey Sandra Sigmundsdóttir með sigurhugmynd ykkar Endurskínandi kindur

plaggat.PNG

Endurskínandi kindur eru, eins og nafnið gefur til kynna, leið til að gera kindur meira áberandi í umferðinni. „Lausnin okkar er að fá bændur til að gera kindurnar sínar sýnilegri með að setja endurskins merki í eyrnamerkingunni hjá kindum til að minka árekstra á sauðfé“

Uppskeruhátíð MEMA 2024 fór fram 29. nóvember 2024,  í sal Háskóla Íslands.  Þar sem sjö teymi kepptu um að hljóta sigurtitil MEMA 2024.
Sigurteymi MEMA 2024 fengu í verðlaun Gjafabréf frá Fab Lab Reykjavík, styrk frá Háskóli Íslands að upphæð skrásetningargjalds fyrsta skólaárið og 250.000 kr frá Huawai og Gjafabréf frá Hopp.

 

image (1).png

Sigurteymi MEMA 2024. Mynd: Kristinn Ingvarsson

 Viðburðurinn var opinn öllum sem láta sig málefni um áskoranir samfélagsins varða. 

Áður en dagskrá hóft fengu þátttakendur afhent þátttökuskjal fyrir að skila inn lausnum til dómnefndar og bókina Toppstöðin eftir þau Kristinn Jón Ólafsson og Þórdísi Jóhannsdóttir Wathne.  Gjöf við hæfi þar sem hún miðla yfir fjörtíu reynslusögum og praktískri þekkingu úr frumkvöðlaumhverfinu og atvinnulífinu. Vonandi verða sögurnar hvatning fyrir þátttakendur MEMA-hraðalsins að halda áfram með hugmyndir sínar og elta drauma sína.

Hafey Viktoría Hallgrímsdóttir, verkefnastjóri MEMA, stýrði viðburðinum og bauð alla velkomna á sama tíma sem hún kynnti dagskrána sem samanstóð af:

  • Ávarp: Dr. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands

  • Ávarp: Þóra Óskarsdóttir, Forstöðukona Fab Lab Reykjavík 

  • Jóhannes B. Urbancic Tómasson tilkynnir þriðja sæti MEMA 2024

  • Sólrún Arnarsdóttir tilkynnir annað sæti MEMA 2024

  • Beatriz Garcia Martinez frá Huawai tilkynnir sigurhugmynd MEMA 2024

Til úrslita valdi dómnefnd lausnirnar eftir:

Ísold Ylfa Teitsdóttir og Dísa María Eyþórs Erlendsdóttir úr FÁ hnepptu annað sætið fyrir hugmyndina Vefra. Vefra er vefsíða sem hjálpar fólki að finna umhverfisvæni fyrirtæki sem selja svipuð föt og stór fyrirtæki sem ekki hafa umhverfið í forgangi. Fólk tekur mynd af fatnaði sem þau eru að leita af og vefsíðan finnur fyrir þau svipaðar flíkur nema frá umhverfisvænum fyrirtækjum.

Karin Ivonne, Ana Boanta, Victoria Rán og Camila Pjapke úr FÁ sem hnepptu þriðja sæti með Paw Pals sem er hundamatur sem inniheldur öll þau næringarefni, vítamín og prótein sem nauðsynleg eru í fóðri hunda og er framleidd úr kjöti sem er núna er fargað.

 

Myndir má sjá frá viðburðinum hér, ljósmyndari Kristinn Ingvarsson og

myndband með hugmyndum allra sem skiluðu inn má sjá neðar á síðunni. 

ÞÁTTTÖKUSKÓLAR Í MEMA - 2024

fa.png
download.jpg

Samantekningarmyndband
MEMA 2024

fb

Verðlaun MEMA 2023

fa

Gjafabréf frá Fab Lab Reykjavík að andvirði 100.000.

HÍ Logo 2021.png

Háskóli Íslands veitir sigur teyminu styrk sem nemur upphæð skrásetningargjalds fyrsta skólaárið.

Most up to date logo_transparency (1).png

Huawei á Íslandi veitir sigurteyminu 250.000 kr

Hopp_logo_green.png

Hopp gaf sigurvegurum gjafabréf í hopp

toppstodin.jpg

Allir þátttakendur fá bókin Toppstöðin.

Dómnefnd MEMA 2024

fs
Beatriz portrait_edited.jpg

Beatriz Garcia Martinez

Samskiptastjóri
Huawei á Íslandi

Oddur.jpeg
Prófílmynd_edited.jpg

Sólrún Arnarsdóttir

Textílhönnun og lagði þar áherslu á lífhönnun og sjálfbær kerfi.

IMG_3920 1x1 gratt.JPG
ThoraFabLabRvk_edited_edited.jpg

Verkefnisstjóri MEMA

Forstöðukona
Fab Lab Reykjvík

img_2933-3.jpg
FB_IMG_1698952235954_edited_edited_edite

Jóhannes B. Urbancic Tómasson

Líffræðingur og sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun

fMos

HVAÐ ER MEMA?

mh

MEMA er nýsköpunarhraðall fyrir framhaldsskólanemendur þar sem þeir vinna að því að þróða hugmyndir sínar og koma þeim í verk í formi frumgerða. MEMA er stytting á MenntaMaskína en í hraðlinum fá nemendur tækifæri á því að nýta hugvit sitt til að leita lausna í þverfaglegu samstarfi við t.d. Fab Lab Reykjavík, Háskóla Íslands, sérfræðinga og aðila úr atvinnulífinu. 

Í MEMA er sköpunarkraftur ungs fólks nýttur til að takast á við áskoranir framtíðarinnar með málaflokka Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í lausnleit þeirra. MEMA byggir á verkefnalotum eða sprettum, sem líkja eftir hönnunar- og nýsköpunar aðferðum alþjóðlegra tæknifyrirtækja sem leggja mikla áherslu á hönnun og fljótvirkra frumgerðarsmíði. Í MEMA er rík áhersla lögð á vísindi, hagnýtingu þekkingar, samvinnu, hönnun, tilraunir og prófanir. Verkefnin er umfangsmikið og fara fram í gegnum fimm spretti: Þekkingar-, Hönnunar-, Tækni-, Þróun- og Lokasprettur.  

Þar fá framhaldsskólanemendur tækifæri á því að sannreyna hugmyndir sínar samtímis sem þau efla samkennd, lausnamiðaða hugsun og þverfaglega og tæknilega samvinnu ungmenna. 

 

Markmið verkefnisins er að nýta nýsköpun og frumgerðarsmíð til að efla tæknimenntun og þverfaglega samvinnu í námi. Einnig að efla skilning ungmenna á möguleikum nýsköpunar til að taka þátt í samfélaginu og leysa vandamál.

 

Fab Lab Reykjavík leiðir verkefnið og hefur það vaxið með stuðningi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, Háskóla Íslands, Reykjavíkurborg og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Með þátttöku í MEMA gefst nemendum og kennurum einstakt tækifæri til að kynnast rannsóknum og þróun nýsköpunarhugmynda með hjálp sérfræðinga. Þessu ná skólarnir með því að bjóða upp á MEMA áfanga og styðja við nemendur til að búa til virka frumgerð að nýsköpunarhugmynd í teymisvinnu. 

​​

MEMA hefst strax og framhaldsskólar byrja kennslu í ágúst, nemendur skila inn lausnum sínum til dómnefndar í lok nóvember. Hraðlinum lýkur með verðlaunaafhendingu í lok haustannar. 

Sjá nánar um fyrri hraðla hér

Skipuleggjendur MEMA 2024

IMG_3920 1x1 gratt.JPG

Hafey Viktoría Hallgrímsdóttir

Verkefnisstjóri MEMA

img_2933-3.jpg

Þóra Óskarsdóttir

Forstöðukona Fab Lab Reykjavík

75439298_10162676656745061_5208857974910484480_n_edited.jpg

Bryndís Steina Friðgeirsdóttir

Sérfræðingur
hjá Fab Lab Reykjavík

Oddur.jpeg

Oddur Sturluson

Verkefnastjóri nýsköpun og menntasamfélag hjá Háskóla Íslands

SAMSTARFSAÐILAR

FB.png
reykjavik_logo_png.png
FLR LOGO (1).png
HÍ Logo 2021.png
mrnlogo.png
bottom of page